Slagorð Samfylkingarinnar.

Slagorð Samfylkingarinnar fyrir kosningarnar mun vera "Þannig stjórna jafnaðarmenn."

Manni dettur þá fyrst í hug Jóhanna með steytta hnefa ausa af skálum reiðisinnar yfir þá sem ekki eru á sömu skoðun og hún.

Við samfylkingarfólk viljum henda íslensku stjórnarskránni,þar sem hún olli banka hruni bæði hér á landi og víða um heim og ekki er séð fyrir enda á þeim ósköpum. Málið er brýnt.

Við viljum taka útgerð og fiskvinnslu úr höndum þeirra sem stunda þann atvinnuveg í dag,gróði er allt of mikill í greininni. Við viljum menn í þá atvinnugrein sem gjörnýta ekki svona aflann og þurfa styrk af almennu fé til rekstrar eins og víðast hvar tíðkast t.d. í ESB löndum þar er líka brottkast leyft.

Við höfum hvorki vit né getu til að stjórna landinu,þess vegna viljum við ganga í ESB og láta þá í Brunssel um það að mest leiti.

Við viljum draga úr íslenskri landbúnaðarframleiðslu,það mun reyndar gerast af sjálfum sér ef við komum þjóðinni inn í ESB. Innfluttar landbúnaðarvörur eru mikið efna ríkari af t.d. sýklalyfjum og allskonar svoleiðis nammi sérstaklega á það við svína og alifuglakjöt og verðið er í öfugu hlutfalli við efna innihald.

Við viljum standa vörð um bankana,fólk er ekkert of gott til að borga einhver þann hæsta vaxtamun og þjónustugjöld sem þekkjast.

Við viljum hafa forsætisráðherra sem brýtur jafnréttislög og hunsar dóma Hæstaréttar.

Við viljum standa vörð um óbreytt ástand hjá á RÚV þar sem mál okkar eru varin og pólitískir andstæðingar rægðir, að örðuleyti eru fjölmiðlar best komnir hjá útrásarvíkingum.

Við viljum sérstaklega standa vörð um hagsmuni erlendra aðila s.b.Icesave samningana.

Þarna sjáið þið aðeins örfá dæmi um okkar frábæru stjórnarvisku kjósendur góðir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband